Perlurnar

Við erum ekki saumaklúbbur, við erum pe-herluklúbbur!

laugardagur, maí 05, 2007

Lesist bottom up!



vá ótrúlega gaman að heyra að þið eruð að festa kaup á íbúð. Glöð að þið eruð líka að koma aðeins nær mér.. því ég er svo síngjörn að það snýst náttúrlega allt um þægindi og fjarlægðir við sjálfa mig sem bý í nafla alheimsins... sorrý.. missti mig aðeins. Enda augljóslega að missa mig í sjálfsvorkunn þessa dagana.. hahaha

Ein spurning.. til að þetta sé einkyrningssótt.. þurfa eitlarnir þá ekki fyrst að vera bólgnir ? Hugleiddi nefnilega alveg þann möguleika þar sem Eva vinkona er nýbúin að liggja í 3-4 vikur í slíkri sótt...

Annars er ég með 4 kommur núna.. er að vonast til að þetta rjúki ekki upp meira.. en I will keep u posted.. bara svona til að drepa ykkur úr tilgangslausu veikindababbli.. ég er alveg að sjá geðveikan svartan og leiðindar-fyndinnsamt húmor í því.. er alveg byrjuð að hlægja í þessum skrifuðum.. hahaha

kv. Jóhanna fjórarkommur !


From: "María Rún Bjarnadóttir"


Hæ kjútílútís,

Jóhanna þetta eru ekki góðar heilsufréttir af þér! Ég skil líka ekki lækni sem gefur manni lyf til að gefa manni lyf þó hann viti að þau virki ekki. Ég segi að þú biðjir um að það verði teknar blóðprufur úr þér til að tékka á einkirning og öðrum óbjóði. bara run the whole thing eins og þeir segja í Greys... ég er annars með helminginn af þáttunum úr seríu 2 á disk frá diljá, skal bara koma honum til þín á morgun fyrst að alluc er með leiðindi við þig. Hann gerir þetta við mig stundum líka. ég var samt að horfa á 21 þátt í 3 seríu núna áðan. mjööööööög eðlilegt að eyða þessum klukkutímum sem ég er vakandi en Víkingur sofandi í að horfa á afþreyingarefni frá ameríku í staðinn fyrir að lesa fyrir höfundaréttarprófið sem ég er að fara í á laugardaginn!!! jah, ég get allavega sagt þeim frá höfundaréttarbrotinu sem ég framdi (sennilega) með því að horfa á Greys í gegnum alluc!!! nýta þekkinguna!

annars erum við Víkingur bara glöð og sæl. byrjuðum í mömmujóga í dag og líst bara nokkuð vel á. þetta er hérna á nýbýlaveginum þar sem við fórum í meðgöngujóga hjá sama kennara og með sömu konum - reyndar er það eini ókosturinn... EN ég er svo þroskuð - enda móðir - að ég fer ekki að láta svona tjéllingar hafa áhrif á jógað mitt! auk þess tekur hálftíma að labba hvora leið svo þetta er nokkuð góð líkamsrækt fyrir feitabolluna sem ég er orðin tvisvar í viku. ég fór í fermingarveislu hjá föðurfólkinu mínu í gær þar sem ég var minnt á hvað hún auður var fljót að grennast eftir að hún átti stelpuna sína í haust. alveg frábært hjá henni alveg hreint! ég hætti að borða köku og drakk bara kaffi eftir það EN ég er allavega með barnsföður mínum OG þurfti ekki að láta gera faðernispróf eftir að Víkingur fæddist til að vera viss um hver væri pabbinn! en ég er samt feit.

svo erum við búin að ákveða að vera áfram á íslandi í eitt ár í viðbót. við komumst að því að það væri aðeins of stjúbid að vífill tæki ekki vinnunni hjá bjögga þannig að hann réð sig þangað í síðustu viku. við förum síðan til london næsta haust, 2008, og ráðningarsamningurinn hans gerir ráð fyrir því þannig að við frestum þessu klárlega ekki aftur! þannig að ég klára vonandi í febrúar, tek þetta próf á laugardaginn og þá á ég eftir eitt fag og svo bara lokaritgerðina þannig að ég ætti að geta klárað um áramótin. og við erum búin að kaupa (það er búið að samþykkja tilboðið okkar, ekki búið að ganga frá öllu hinu) íbúð á ásvallagötu 44. 111 fermetrar og 4 herb (ss 3 herbergi og stofa). við fáum hana reyndar ekki afhenda fyrr en í september, en það er bara þannig. ég hlakka rosamikið til að geta labbað í skólann aftur! ss nálægðin sem heillar, ekki skólinn... :)

jæja - ætla að fara að gefa risanum á heimilinu að borða - var með hann í 6 vikna skoðun í dag og læknirinn trúði því varla að hann væri bara að fá brjóstamjólk en engan mat hann er búinn að stækka svo mikið. orðinn 6 kíló og 59 cm, sem er hlutfallslega helvíti mikið svona miðað við að hann fæddist 4 kg og 52 cm - og það var fyrir 6 vikum!

knúsíklessu á ykkur allar,

M


From: "Sigrun Olafsdottir"


Sælar sæturnar mínar!

Það gekk vel að lesa ritgerðina yfir hjá kallinum, enda alltaf gaman að lesa um hagkvæmnisúttektir á stækkun hitaveitna... Hann er bara ógeðslega heppinn að hafa fengið mig til að lesa yfir því að fáir eru jafn færir í orðalagi og stafsetningu og ég eins og Jóhanna veit. Hahaha...! Neinei, ég leyni á mér... fannst ég bara ógó klár eftir að hafa lesið þetta yfir og tekið út nokkur "þá" og kommur annars gerir snillingurinn minn ekki stafsetningavillur því hann er svo ótrúlega klár og sætur!

Annars er ég bara mjög hress, með gel, frensh og skraut á tánum í sólinni og góða veðrinu á Akureyri. En ég hlakka líka mjög til að flytja suður, vantar bara íbúð til leigu... Vitið þið um einhvern sem vill leiga ungu fallegu, "reyklausu" (nema um helgar) og reglusömu fólki íbúð á verði sem er ekki augun úr í sumar eða í 1-2 ár??? Ef þið vitið um eitthvað sneddí, eeendilega hafið samband við yours truly.

Love you, verð að fara að vinna sjitt!

mússmússs....





From: "Jóhanna Héðinsdóttir"


Smá updeit frá Skeljagranda 4,

þar sem Jóhanna er innlimuð, innikróuð, í sóttkví, stofufangelsi... hélt að mér yrði seint ógnað af of mikilli veru heima í minni annars yndislegu íbúð - en öllu má nú ofgera. Ég taldi þetta saman áðan, þar sem ég hef ekkert betra að gera.. síðan á páskadag (23 dagar síðan) er ég búin að liggja í 13 daga heima hjá mér lasin ! Geri aðrir betur segir maður nú bara.

Nú staðan er þessi: hringdi í hjúkrunarfræðing á læknavaktinni á föstudagskvöldið. Ég er ekki mikið fyrir læknavesen og nennti ekki að vera að gera of mikið úr hlutunum. En hjúkrunarfræðingurinn var samt á því að þetta gæti ekki talist eðlilegt þannig að hún ráðlagði mér að hitta lækni. Reif mig fram úr rúminu og fór á læknavaktina sama kvöld. Fékk ekki mikla hjálp þar ef satt skal segja. Held að ég hafi verið í samtals tvær og hálfa mínútu inni hjá lækni sem hlustaði mig alla og hummaði mest allan tímann áður en hann gaf mér sýklalyf ,,til vonar og vara" og toppaði hummið með því að segja að það væru litlar líkur á að sýklalyfin virkuðu eitthvað á mig þar sem þetta væri líkast til svæsin veirusýking, en við þeim hafa sýklalyfin ekki neitt að segja.

Ég er ennþá heima, sef ekki á næturnar fyrir miklum hósta. Leiðist allan dagin af því að ég er ekki með nógu mikinn hita til að sofa - mín aðal iðja er að hitamæla mig og fylgjast með mælinum rokka á milli tveggja komma upp í 38 stiga hita - í þeirri von um að mæta þeim degi þar sem hitamælirinn er stöðugur á 37 stiga hita ! That will be the day I go out of this place....

Gaman að heyra í ykkur, gaman að heyra ástarsögur í vorblíðunni sem ég sé út um gluggan hjá mér og sem ég hef stolist til að reyna á eigin skinni með því að bregða mér út á svalir í stutta stund. Hvað er að frétta af brúðkaupsplönum ? Hvernig heilsast óléttu konunni í hópnum ? Hvað er að ske í Danmörku hjá Kötusúkkulaði? Hvernig gekk fundarstjórn á laugardaginn hjá Höllusköllu? Hvernig gekk að lesa yfir Bs ritgerðina hans Dóra? Og hvernig líður nýbökuðu móðurinni og sæta prinsinum honum Víkingi? ........... Þetta og margt fleira væri gaman að lesa í pósti frá ykkur ;)

kv. Jóhanna, sem er að berjast við að halda geðheilsunni ;)


From: Diljá Ámundadóttir


Hæ elskurnar

Já Greys kom inní líf mitt í San Francisco, sá 1-2 þætti og hugsaði "jáá þetta er svona ER en samt e-ð krassandi um læknana, love and stuff;)"
Þar sem að ferðin frá KEF til Árósa tekur 10 tíma þá hef ég stundum splæst á mig DVD myndefni á Leifstöð (á Leifstöð firrist líka fjármunarammi minn) Í lok ágúst 2006 keypti ég mér semsagt fyrstu seríuna af Greys Anatomy. Síðan þá hef ég verið fíkill.
Ég fékk svo stuttu seinna alla seríu 2 skrifaða. Lá stanslaust yfir þessu á meðan herbergisfélagi minn og samlandinn Heba hékk með bekknum mínum í tíma og ótíma. En ég hafði intern krakkana á spítalana til að gleyma þeirri gremju sem stúlkan skapaði mér.
í dag er ég komin á þátt 20 í þriðju seríu. Í dag er ég ekkert svo gröm.
---þar hafið það elskurnar:)

Mín skólamál:
Ég skila mínu verkefni ekki núna. Ég skila því á næsta ári. Hefur liðið svolítið illa yfir þessari ákvörðun, en er þó létt. Ástæðurnar eru margar. Sú stærsta er þó að ég er komin í 100% vinnu hjá Hr.Örlygi og mín bíða góðar áskoranir, skemmtileg verkefni, ferðalög, sæmileg laun og margt fleira.
Ég fer út í lok Maí og held Gus Gus tónleika á Vega í Köben. Svo held ég til árósa og eyði viku með bekknum mínum, uppgjör sl 3ára og lítil útskriftarferð. Þann 15 júní útskrifast ég....samt. Þó svo ég skili ekki inn mínu, ég tek bara við tómu skjali uppá sviði.
En allir bekkir klára saman í KaosPilots. FamilyValues you see...

Gaman að þessu.

María; Hildur Sve er komin inní Finnsmálið, sem og Leibbi Djass. Alltaf gaman að plögga, má ekki annars plögga ástinni?
Það er spurning! En það má þó plögga vor fiðrildum. En ég hef nóg af þeim í maga mínum. Búin að henda út annari veiðistöng meira að segja. Sá sem á þann öngul má bíta heitir Óli og er Thorarensen. Er að kynnast honum í gegnum vinnuna en hann er framkvstjóri Midi.is. Hann á dóttur og líka vélsleða. Með góðan húmor og viðurkenndi fyrir mér að hafa "googlað" mig um daginn. Fæddur 76.
Jáh, þetta er vorið held ég barasta:D

Æðisleg uppgvötun allra kvenna, sem ég uppgvötaði í gær:
Ætlaði að nota belti sem ég hef ekki notað í nokkra mánuði. Síðast þegar ég notaði það, var það í 3 gati frá innsta gati. Núna; innsta gatið er of vítt. Túlkun: Þó-nokkrir sentimetrar farnir af stúlkunni. Ekki leiðinlegt. Alveg hreint æðislegt verð ég bara að segja.

Jæja núna ætla ég að fara að sofa. Tjékkið á www.myspace.com/sprengjuhollin og hlustið á lagið "Verum í sambandi"
Alveg uppáhalds. Hress hljómsveit, fór að sjá hana í gær. Mæli einlægt með henni!

Ykkar
Diljá


On Apr 27, 2007, at 11:44 PM, Katrin Jonsdottir wrote:

hæ hæ
ég er alveg á því að Greys anatomy hafi bjargað lífi mínu líka - það er ekki til betri verðlaun fyrir "dugleg að læra dag" (eða forðunarhegðun eftir því hvernig stendur á) en Greys Anatomy. ég á by the way alla þættina í öllum seríum á flakkara ef einhver vill nálgast þetta hjá mér - get tekið flakkarann með mér í skólann svo þið sleppið við sveitaferð.

ég er líka dramatísk eins og þú Jóhanna - ekki varðandi heilsuna reyndar heldur varðandi skólann. hef átt mjög erfitt með að koma mér að verki við að skrifa inngang og sjálft lokaverkefnið þó svo gagnasöfnun hafi gengið vel. þó svo ég sé búin að skipta verkefninu niður í smærri bita og setja mér markmið og undirmarkmið og mælanleg markmið og tímasett markmið og sértæk markmið og allt hitt þá gerist mjög lítið. Reyndi svo í dag að taka sjálfa mig í sálfræðimeðferð, Katrín hvað ertu að hugsa þegar þú getur ekki einbeitt þér og ferð að gera allt annað en að læra. en nei það virkar ekki heldur - enda erfitt að taka sjálfa sig í meðferð. Þannig að ég ákvað bara að hætta að hugsa og just do it! Held að það verði mantran mín næstu daga - segi "just do it" við sjálfa mig á klukkutímafresti.

en þrátt fyrir þetta drama í mér með skólamálin þá er lífið bara mjög gott þessa dagana - Johan í Svíþjóð og þó ég sakni hans þá er líka mjög gott að þurfa bara að hugsa um ME og ekki taka tillit til hans ;-)
Svo er nú líka smá gaman að vera svona á endasprettinum með skólann og svo er líka gaman að það fer að styttast í sumarið og ... og ... en ég ætla nú ekki að missa mig í jákvæðninni.

well þarf að fara að sofa - hlakka til að lesa mail frá ykkur öllum
kossar og knús - Katrín




From: "Jóhanna Héðinsdóttir"



Kæru vinkonur !

Dramatíkin í lífi mínu náði hámarki í dag þegar ég kláraði síðasta þáttinn í þriðju seríu af Grey's Anatomy - ég fór næstum því að gráta. Ég hringdi í Maríu og fékk upplýsingar um hvernig nálgast mætti fleiri þætti á www.alluc.org Það þótti fullreynt þegar fyrsti þáttur í fyrstu seríu hafði stöðvast 5 sinnum á einni og hálfri mínútu á meðan tölvan þóttist vera að ,,buffering" eitthvað eins og hálfviti ! Ég trúði því statt og stöðugt að ég væri ekki ,,sukker" fyrir svona seríum, sápuóperum eða hvað það kallast. En síðasta einn og hálfan sólarhring eru þessir þættir virkilega búnir að bjarga geðheilsu minni.

Á þriðjudaginn síðasta, já þá fór ég nefnilega virkilega að grenja ! Grenja eins og smákrakki af því að ég var enn eina ferðina komin með hita og lögst í rúmið. Ég svaf allan þriðjudaginn og beit á jaxlinn seinnipart miðvikudags til að drífa mig af stað í skólann.. löngu orðin þreytt á því að tilkynna forföll mín.. Ég skyldi sko sigrast á þessu ömurlega veikindadrasli ! Nú það fór sem fór - á miðvikudagskvöldið var stúlkan orðin verulega lasin og yfirgaf rúm sitt ekkert í gærdag nema til að fara á klósettið og sækja meira súkkulaði. Sömu sögu er eiginlega að segja um daginn í dag - mesta þrillið var símtal við Maríu , tölvupóstur frá Höllu og að setjast við tölvuna núna að skrifa smá e-mail, í þeirri von um að fá einhver skemmtileg e-mail tilbaka svo að lífið verði nú svolítið flippað um helgina...

Get svosem ekki sagt annað en að þetta flensuvesen hljóti að vera sumpart mér að kenna. Enda hef ég nýtt hvert tækifæri til að fara út og flippa svolítið um leið og hitinn hefur lækkað eða horfið í smá tíma.. Það hefur alltaf virkað hingað til þegar ég hef verið lasin, en greinilegt að þessi flensa er eitthvað að spila með hausinn á mér .. þykist vera að fara eða farin og blossar síðan upp aftur. Get bara sagt að ég er ekki að fíla svona framkomu ! Sveiattan

Nú áður en ég held áfram að vorkenna sjálfri mér - trúið mér það var ekki beint tilgangurinn, þá verð ég bara að segja að ég hef stórkostlega vanmetið heilsu og heilbrigði hingað til ! Get ekki legið heima hjá mér í fjóra daga án þess að vorkenna sjálfri mér og hugsa um alla hlutina sem ég er hugsanlega mögulega að missa af.. ég býð ekki í það ef ég yrði alvarlega veik - ég þyrfti góðan kokkteil af þunglyndis og kvíðalyfjum til að komast yfir það.. hahaha Nú eða fleiri seríur af góðum afþreyingarþáttum....

Ég segi skál í botn í Engifer og hvítlaukstei.. spray af rescue hvítlaukssprayi og tvöþúsunddropa af sólhattardropum í munnin ! Hlakka til að fá einhver skemmtileg bréf frá ykkur um eitthvað skemmtilegra en það sem ég hafði að segja í mínum pósti...

chiao, Jóhanna

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home