næstu mail
ég á nóg af samúð fyrir hvern sem vill fá! bara gjöööössovel kjúklingar! :)
ég kemst í hitting hvenær sem er í næstu viku, nema á mánudögum og miðvikudögum fyrir hádegi - þá erum við Víkingur í mömmujóga. olræt - sí jú súúúún. allir að láta sér batna þangað til og kata að láta sér ganga vel með symbolin á bolina.
xoxoxox M
From: "Halla Gunnarsdóttir"
Viljið þið diljá ekki bara byrja saman?
Nei, ég bara spyr.
Eg væri sko alveg til í samúð frá fleirum. Lögst í rúmið í þriðja sinn á rúmum mánuði. Og vorkenni mér náttúrlega alveg svakalega.
Ég er samt alltaf að þykjast vinna, sem er skjalfest, enda afrakstur minn á lö morgunblað ekki minni, heldur bara verri!
Eg veit ekki hvað greys anatomy eða hvað það heitir er og finnst ég doltið út úr.
Ég er að læra, finnst ykkur mikið af ég í þessum pósti?
Fjör að læra í veikindum. Kannski ég skoði allar myndirnar af víkingi frá því hann fæddist? Skilst það virki vel í lærdómi.
Túrílú.
Hádilíhú.
H
ps. styð hitting áður en ég fer út, t.d. næsta fimmtudagskvöld þegar ég er búin með verkefnið mitt í skólanum og sona.
"Jóhanna Héðinsdóttir"
hæ hæ
Ég hef getað lesið öll mail nema fyrra mailið hennar Kötu... Magga þarf greinilega bara að fara að endurskoða póst-dótið sitt ! Já og María.. ekkert stress með Grey's enda er heilsan öll að koma til... ekki það að ég væri náttúrlega ekki á móti því að fá þetta lánað og horfa á við tækifæri. Ég var sumsé hitalaust í gær og Diljá bauð mér með sér í Kringluna áður en ég fór að vinna.. vann alveg heila hálfa vakt og þá vildi samstarfskona mín endilega að ég færi heim að hvíla mig svo ég myndi nú ekki ofreyna mig of mikið fyrsta daginn ;)
Nú í dag er ég svo bara búin að hanga heima í rjómablíðunni, sitja smá á svölunum og var farið að leiðast pínu.. þá hringdi Diljá og bauð mér í bíltúr í Hafnafjörðinn á fjalla jeppanum.. það gerðist nú margt skemmtilegt í þeim bíltúr get ég sagt ykkur ! Við vorum næstum því lentar í árekstri, náðum í bæklinga sem ultu úr kassanum út um allan bíl.. fórum á maðurlifandi og fengum okkur heilnæma máltíð... sáum feita skeggjaða gamla strákinn sem Diljá er svo skotin í í Bústaðarbrekkunni... borðuðum heilsusúkkulaði... sungum Mika lagið um Greys Kelly.. og svo henti hún mér úr á Eiðstorgi svo ég gæti keypt mér frussandi bjór til að svala mér á og hugga mig við í kvöld ! Já og á Eiðstorgi sá ég Didda landafræðikennara að setja upp bás fyrir vinstrigræna.. en ég var ekki í stuði til að heilsa upp á hann.. geri það næst. Nú þetta er bara með þeim mestu ævintýrum sem ég hef lent í á síðastliðnum 10 dögum skal ég segja ykkur.
Halla á hinsvegar ALLA mína samúð núna.. hálf slöpp heima hjá sér ! Ég sem var búin að hlakka svo til að fá mér kannski svosem einn bjór með henni og helst fleirum.. því hún er jú að fara að flytja á austfirðina áður en langt um líður. Legg til að við reynum að skipuleggja veglegan hitting áður en það verður !
Bestu kveðjur, frá flippuðu ævintýramanneskjunni sem komst alla leið til Hafnafjarðar í dag.. og tilbaka!
From: "María Rún Bjarnadóttir"
hæ,
ég fæ stundum líka allt í rugli. núna fékk ég bara fyrra meilið frá kötu. er annars líka að lesa fyrir próf og er eeeeeekki að nenna því!!! höfundaréttur á morgun en ég er bara að knúsa Víking allan daginn! pabbi hans tók sér frí í dag til að vera með hann svo ég geti lesið. ég er búin að fletta í gegnum allar myndir af honum frá því að hann fæddist á meðan, ekki lesa neitt! mjööög eðlilegt! allavega, jóhanna ég gleymdi því nottlega að ég ætlaði að koma til þín með greysið hennar diljáar (heilinn á mér lekur) en ég er búin að skrifa það niður og segja vífli það núna og dvdin eru komin útí bíl þannig að ég kem við hjá þér á morgun eftir próf. kata, ertu búin að prófa textílkjallarann varðandi starfsnámið? frænka mín á það - ég skal tala við hana ef þú villt.
ok - ætlað halda áfram, vífill verður ekki ánægður þegar hann kemur heim og sér að ég er ekki búin að lesa neeeeeitt!!
smússísmúss.
On May 3, 2007, at 8:46 PM, Katrin Jonsdottir wrote:
hmm eg hef nu bara fengid fyrra mailid fra Kotu i rugli - hvad segid tid hinar, hafid tid ekki heldur getad lesid neitt??
kv.katrin
From: Margrét Lilja Pálsdóttir
Hæ sætu perlur
Ég fæ meilin öll í rugli get ekki lesið þau. Veit ekki hvað það er. Fyrsta meilið sem ég get lesið er meilið hennar Kötu hér fyrir neðan. Skrýtið!!! Ég er búin að ná því að það er mikið talað um Greys anatomy! Vona að ég fari að fá meilin á íslensku svo ég geti fylgst með!!
Magga
From: Katrín Ósk Björnsdóttir [mailto:kata79@mi.is]
Jú sælar stúlkur,
Leiðinlegt að heyra að með þessi veikindi hjá þér Jóhanna, en ég er einmitt að vorkenna mér líka þessa dagana og er að deyja úr eirðarleysi útaf því.
En þannig lyggja nú málin að ég er í 3 vikna prófi í fatasaum og gengur prófið út á að skrifa ritgerð um ferlið sem ég fer í gegnum þegar ég sauma 4 boli handa mismunandi týpum af konum. En þemað í prófinu er tekstill sem talar... og hvað er tekstill sem talar?, og ég hef komist að því að fyrir mér er það efni með texta, bókstöfum, litum og táknum, og hef ég ákveðið að vinna áfram með táknin (symbols). Þannig að ég er að reyna að hanna boli, skyrtur og toppa á týpurnar "rock/punk-týpuna" , "romantisku-týpuna", Bohemian/101-týpuna og svo "elegant-týpuna" ... en táknin eiga svo að koma á framhlið bolsins, peace=no more war, recykle=global warming/ helth of the planet, rauða slaufan=stop AIDS og regnbogi=forskellige mennesker...þetta gengur ágætlega og er ég nú ekkert að hanna neitt sem hefur ekki verið hannað áður því að ég er ekki sú besta í fatasaum, en ég verð að taka þetta próf því að ég ætla ekki að velja fatasaum á næsta ári... ég ætla að velja vefnað og prjón...
Já og svo er ég líka að vorkenna mér að þurfa að vera inni að skrifa ritgerð þegar að það er 20°c hiti úti og glampandi sól... kannski bara eins gott því að ég væri pottþétt brunarúst ef að ég gæti verið úti... en ég fer út að ganga í ca 2 tíma á dag til að verða ekki alveg brjáluð inni.... og að það er enginn danska í hausnum á mér bara léleg íslenska með dönskuslettum...
Ég er svo að reyna að fá einhverja tekstil starfandi manneskju til að taka mig í starfsnám á íslandi en það er ekki alveg að ganga eins og ég vildi... danir elska að fá einhvern í starfsnám en íslendingar hafa engan tíma í það og finnst það vera óþægilegt og eru hræddir um að ég stingi þá í bakið með að herma eftir vinnunni þeirra!!! Frekar fúl út í samkeppnisfulla íslendinga ...þeir fatta ekki að starfsnám gengur út á að ég sé að fylgjast með ekki herma!! ... þarf svo að nota þetta strafsnám í BA ritgerðina ... arg
Annars er allur minn hugur heima á íslandi hjá Jóa, er með netta heimþrá en ég tel dagana þangað til að ég komi heim og eru bara 62 dagar eftir!! Sem betur fer er mikið að gera hjá mér svo að ég vona að tíminn lýði hratt á gervihnattaöld... en einmitt þegar að ég er einmanna þá kaupi ég mér oft hamingju með peningum sem ég fæ lánaða á háum vöxtum frá bankanum og er þetta það nýjasta
Ég varð alveg hamingjusöm og ekki eins einmana í nokkra daga eftir skókaupin..
Well best að fara í háttinn...
Óska þess að ykkur lýði öllum vel og enginn meiri veikindi..
Peace, over and out
K