ó boj
heimilið mitt er aftur á leiðinni ofan í kassa, búin að pakka í 10 kassa dót sem á að vera í geymslu hér í Svíþjóðinni og er að vinna í þessu með að pakka því sem skal með til Íslands - það er samt skiljanlega mjög erfitt að ákveða í hvaða fötum maður ætlar að vera næstu 2 vikur og reyna svo að pakka restinni, shit fæ valkvíða dauðans.
Datt samt eitt sniðugt í hug - pakka bara næstum öllu og sendi í skip þannig að mig vanti síðan föt !!! og þá neyðist ég til að fara og kaupa fleiri !! geðveikt sniðugt :-)
Annars er bara ein vika í að ég komi heim og geti hitt allavega einhverjar af ykkur júhú :-) - Kötu og Diljá hitti ég samt ekki fyrr en næst þegar við erum í sama landi á sama tíma :-( en það hlýtur að gerast fljótlega.
Hvernig stendur annars á því að engin bloggar hérna? er kannski fólk farið að þreytast á þessum blogheimi, get nú alveg ímyndað mér það en vill samt minna á að þegar maður býr í útlöndum hefur maður lagalega skyldu að blogga - spyrjið bara Maríu ;-)

1 Comments:
jábbs. klárlega!!
þeir sem vilja rökstuðning fyrir þessu hafi samband á e-mail fyrir 25. ágúst.
Skrifa ummæli
<< Home