Perlurnar

Við erum ekki saumaklúbbur, við erum pe-herluklúbbur!

þriðjudagur, nóvember 29, 2005

Jæja perlurnar minar...

Nú eruð þið flestar í prófum og eigið pottþétt eftir að tjékka á þessari síðu e-ð í svokölluðum pásum. Mundið bara að það er ekki pása að fara einn blogg rúnt á internetinu. Reynið að standa upp og hreyfa ykkur smá. Fá ykkur ávöxt eða vatn. Það er pása. Nú ef þið viljið ekki gera það sem ég segi þá mæli ég með því að við gerum enn einn svona klukk eða kitl lista heheh....



Sjö hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey.

1. hitta manneskju um borð í flugvél, gefa mér tíma til að tala við hana og láta hana breyta lífi mínu með sögu sinni.
2. sjá réttakerfið hafa áhrif á dölun í kynferðisafbrotum
3. læra að elska líkama minn skilyrðislaust
4. drepið/taka úr spilun lögin I will surive og raining men...að eilífu. KillDisco!
5. verða heltekin af ást af annari manneskju...og það verði líka gagnkvæmt.
6. lesa allar þær bækur sem mig hefur langað til að lesa, en ekki komið mér í (vegna...?)
7. gifta mig á Búðum, í kjól með vönd og slör,grenja úr gleði allan daginn
og svo í Las Vegas, tipsy, í tö-höff fötum og með tyggjó, flissandi,

Sjö hlutir sem ég get gert.

1. hlegið jólalög (jingle bells er best held ég)
2. lent í ævintýrum og kynnst nýju fólki
3. verið ein með sjálfri mér og líkað vel
4. climaxað á því að gera rosa gott skipulag og hafa yfirsýn yfir margt í einu
5. markvisst brotið sjálfa mig niður eftir að hafa mátað gallabuxur
6. gengið allt allt ó svo allt of langt í svörtum ógeðslegum húmor
7. grátið án þess að skammast mín

Sjö hlutir sem ég get alls ekki gert.

1. drukkið campari né gin og tónik
2. bakkað í stæði, eða bara lagt í stæði ef út í það er farið.
3. fundist einlægt gaman í fitness, íþróttum ofl.
4. sagt orðið develope(ment) með enskum framburði
5. skorið brauðsneið, þannig að hún sé jafn þykk
6. talið upp allra sem ég kysst franskan koss
7. hugsað mér að vera föst "innírammanum"

Sjö frægir sem heilla

1. jack hannah
2. christina ricci
3. björn hlynur
4. Chloë Sevigny
5. sylvía nott
6. Addi trommari Ham og Aparat
7. viggo mortensen


Sjö hlutir sem heilla mig við aðrar manneskjur.

1. húmor og hnyttni
2. öryggi
3. að vera smá öðruvísi og frumlegur
4. að hafa metnað
5. traust
6. fordómaleysi
7. ákveðni

Sjö setningar sem ég nota mikið.

1. ertu ekki að grínast??
2. æh fokk itt
3. þetta reddast
4. Eee-helskan mín!
5. já er það???
6. margblessuð/blessaður og sæl/l
7. shit ég er búin að týna lyklunum, kortinu, veskinu, myndavélinni....osfr.

Sjö hlutir sem ég sé.

1. fataslá með öllum flottu fötunum hennar Kamillu sambýliskonu
2. iBookG4 (barnið mitt sem fer með mér allt, ásamt iPodinum bleika)
3. þykka tússpenna í plastumslagi
4. miðlungsstór glerskál með nokkrum poppkornum og baunum
5. Bók sem ber nafnið "karaoke capitalism"
6. KaosPilot lyklakippu með fullt af lyklum á
7. dúnsængina mína

sjö sem ég ætla að klukka

1. giovanni
2. katasúkkulaði
3. maría of my soul
4. halla gunn
5. sigrún marglitaða
6. magga mjóa
7. katrín Johnson

4 Comments:

Blogger maria said...

ég ætlað gera þetta á fimkvöld.
yebb yebb yebb. holla! (kræst hvað þetta var glatað hjá mér!)
eigum við ekki bara að giftast samtímis fyrst við ætlum að gifast á sama stað dillsí? hvernig lýst þér á?

11:06 e.h.  
Blogger Sigrún said...

Vá Diljá, frábærir listar... ég elska lista!

7:32 e.h.  
Blogger Dilja said...

jú finnst þér það góð hugmynd, vera grenjandi saman úr gleði:) heheh
annars er ég nú að fara ískyggilega stutt frá Las Vegas eftir jól....eeeehum:)
en ég á engan kæró:P heheh

sigrún gera lista líka vei vei vei vei vei

1:36 e.h.  
Blogger Katrín said...

heyrru heyrru - ætlar engin að svara öllum þessum spurningum ?? mig vantar eitthvað til að lesa í hléunum mínum !!

11:30 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home