hvað er í gangi?
svona í tilefni þess að SanFran-Diljá setti þessa fínu síðu í gang handa okkur so we could keep in touch - og líka soldið svona vegna þess að ég var búin að gleyma þessari síðu - ákvað ég að setja inn nokkrar línur, svona til að tékka hvort þið skoðið þessa síðu eitthvað lengur ...
Ég fer út til Svíþjóðar 15.maí - ætla að leigja alveg ótrúlega ljótan en ótrúlega "hagkvæman" bíl í sumar (kemur væntanlega ekki mikið á óvart), þennan bíl ætla ég að nota til að keyra á golfvöllinn, keyra í vinnuna í fangelsinu (sem ég held að fái alveg aftur, kemur í ljós eftir helgi) já og jafnvel nota þennan blessaða bíl til að keyra til Johan þegar ég verð í fríi þar sem hann verður að vinna flesta daga í sumar. Veit ekki alveg af hverju ég er þá að fara út en það er önnur saga ...
En afleiðingar þessa ofangreinda eru þær að ég verð væntanlega ekki á landinu þegar Magga verður gæsuð (það er ef við ætlum að gæsa ;-/ ) og alls óvíst ennþá hvort ég komi yfirhöfuð í þetta fallega brúðkaup sem við höfum allar verið að bíða eftir. þetta finnst mér að sjálfsögðu algjörlega fyrir neðan allar hellur og alls ekki ásættanlegt svona þegar ég hugsa málið betur!
en þetta verður bara allt að fá að koma í ljós
þegar ég sigrast á frestunaráráttunni verður þetta allt saman kristaltært !
peace out K

2 Comments:
hehe. ég hlakka til að gæsa miss maggý :)
kallinn á neðri hæðinni er hálfheyrnarlaus og er að hlusta á óperu. það þýðir að ég er að hlusta á óperu, algerlega óháð því hvort mig langi að hlusta á óperu.
og af því að ég er með haus fullan af hori (svo horuð stelpan!), hausverk og hita þá langar mig sérstaklega lítið til að heyra þessa goddemans óperu (sem mér finnst samt oft skemmtilegt).
stundum er lífið alveg hræðilega hart!
hart en huggulegt!
auðvitað verður magga bebis gæsuð!! og ég vil fara að skipuleggja gigg fyrir veisluna asap!
gerum e-ð gott, gerum það saman...
fokkings haldið áfram að skrifa á þessa síðu pjásurnar mínar
Skrifa ummæli
<< Home