Veröldin, hún er flá það var ljóst fyrir löngvu...
ég gef þeirri Perlu bjór sem veit úr hvaða lagi þetta er!
Úr danmörkinni er allt svo gott að frétta. Ég er í svona verkefnistörn núna. Það er að segja: VERKEFNISTÖRN ÁRSINS!
Við erum 4 að vinna saman og vorum gjörsamlega fucked í 3 vikur. Ferðuðumst um heimin í huganum alla daga án þess að taka skrefið nær honum. Að lokum var að ákveðið að vera í Árósinni og vekja hana aðeins upp af værum svefni. Hér í Danmörku er ástandið hrikalegt þegar það kemur að vitund Dana varðandi nauðganir. Hér er fjórði hver Dani sem trúir því að fórnarlamb eigi að bera ábyrgð á þessu agalega atviki.
Já já einmitt.
En þetta verður ágætt hjá okkur. Við erum með flotta hluti sem fær fólk vonandi til að hugsa. Trúi ekki öðru.
En mikið óskaplega er erfitt að vera í svona hópavinnu stundum. Stundum er ég svo pirruð inní mér. Alveg að springa. En svona lærir maður líka. Lærir á sjálfan sig.
Veðrið er alltaf að nálgast "Bene" fíling (elska fólk sem segjir Bene og Costa og svona skemmtilegar styttingar) Ég er í flip flopps í dag það er alltaf smá sumarlegt.
Ég fékk draumavinnuna í sumar, þeas allavega draumavinnustaðinn. Kannski verð ég bara í skúringum. Hver veit? En ég er INNI og það gerir mig glaða...
Farið nú að skrifa e-ð hérna pjásurnar mínar...
Bæjó

1 Comments:
JÓHANNA! af öllum perlum bjóst ég við að ég myndi bjóða þér uppá bjór eftir þessa getraun, ég gef þér hér með annan séns stúlka!
ég verð að vinna hjá storm, sem er mjög smart fyrirtæki í bransanum;)
Skrifa ummæli
<< Home