Perlurnar

Við erum ekki saumaklúbbur, við erum pe-herluklúbbur!

föstudagur, maí 06, 2005

sko ...

... þetta að vera gjaldkeri er alveg að ganga ágætlega hjá mér - hins vegar gengur illa að fá skoðanir allra perlanna á hreint. Sendi eitthvað mail þarna um daginn og er enn að bíða eftir svörum, vona bara að þið hafið ekki reynt að senda mér mail frá einhverri nýrri mailadressu því þá stoppar hotmail junkmail filter það og hentir því beint í ruslið. Svona er lífið !!!

Annars allt fínt að frétta - lífshættulegt fyrir visa kortið að hafa systur mína í heimsókn en hei mig vantaði nýjar buxur, og belti, og bol og annan bol. Á morgun skelli ég mér svo í búð og kaupi golfsett, hinn daginn fer ég svo á golfnámskeið og læri að nota dótið. Þannig að alla næstu viku er ég upptekin við að æfa mig í golfi.
Vona bara að þið hafið það gott líka - spes kveðjur til ykkar í próflestri, ég vorkenni ykkur, er bara svo ánægð að vera ekki sjálf í vorprófum að ég gleymi stundum að vorkenna ykkur ;-)
Og allt sem er að gerast hjá ykkur hinum sem ekki eruð í vorprófum TIL HAMINGJU !!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home