Perlurnar

Við erum ekki saumaklúbbur, við erum pe-herluklúbbur!

laugardagur, apríl 23, 2005

Vorið er komið og grundirnar groa...

Já þetta er einmitt lagið sem kom mér inn í Rokklingana á sínum tíma. En svo skemmtilega vill til að þetta lag á svona vel við veruleikan hérna í Danmörku þessa dagana, því já; Vorið er nefnilega komið! Sólin skýn næstum því alltaf og það er borderline heitt, allavega í skjóli og sól. Í skugga og vindi er nefnilega eiginlega bara kalt. En svona er vorið.

Vorið er og hefur alltaf verið minn tími ársins. Ég fæ firðildi í magann og orku-levelið hækkar um nokkur stig. Það eru spennandi tímar framundan hjá KaosPilotinum mér. En ég er mjög líkalega að fara langt útí heim að gera verkefni. Fyrsta árs lokaverkefnið mitt er hafið. Þegar það er búið kem ég heim til Íslands á ný. Ó hvað ég hlakka nú til. Vona að ég komi sigri hrósandi heim eftir verkefnið fyrrnefnda.

Önnur Perla sem ekki skrifar á þessa síðu né kommentar er hins vegar að takast á við eitt af sínum stærstu verkefnum í sínu lífi þessa dagana. Og það er understatement að segja að hugurinn minn er mikið hjá henni, því á svona tímum langar manni örlítið meira að vera heima en ella. En MSN-ið er mátturinn og dýrðin á meðan hafið bláa er á milli okkar. Ég trúi og treysti á það að réttlætið sigri að lokum.

Þangað til næst óska ég ykkur öllum velfarnaðar á næstu dögum og vikum. Ég sakna ykkar mikið, og það vitið þið.
Og svo ættum við nú að vera duglegri við að skrifa litla pistla hérna inn, sérstaklega svona pistla um mig eins og María gerði hérna að neðan. Ættum eiginalega alltaf að láta hann vera efst....Hmmm pæling!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home