Perlurnar

Við erum ekki saumaklúbbur, við erum pe-herluklúbbur!

föstudagur, mars 25, 2005

takk fyrir síðast

takk fyrir síðast elsku dúllurnar mínar - þetta kvöld bjargaði lífi mínu og ég á sko eftir að lifa á því lengi lengi lengi lengi.
Vona bara að ég verði hérna heima í sumar svo ég geti hitt ykkur oftar, veit samt ekki alveg hvort ég sé jafn æst í Singstar og María og Diljá. Stjórendurnir eru næstum með of mikla Singstar reynslu en ég hins vegar er bara Amateur. Svona er lífið !!

Annars fer ég aftur heim föstudagsmorguninn 1.apríl en er með gamla gsm númerið mitt þangað til og er alltaf til í spjall. eða sundferð eða göngutúr eða hvað sem er.

love you all
K

miðvikudagur, mars 16, 2005

míns er þunnur ...

já já Katrín fór í fyrsta skipti á Palace í gær
og bara svona fyrir ykkur sem ekki vita það þá er það "the" palce to be in Norrköping. En þar sem það var þriðjudagskvöld var ekki svo mikið fólk en samt nóg af áfengi og hiphop músík til að hrista rassinn við. Fór líka með dansóðum stelpum þannig að þetta var sko bara mjög gaman.
já og svo reyndu 2 strákar við mig - það var ekki verra. Skil samt ekki af hverju það eru alltaf svona frekar ekki myndarlegir menn sem reyna við mig??? Þeir eru ekki ljótir en bara ekkert sérstaklega sætir heldur og þar sem ég er svo shallow þá er útlitið það eina sem skiptir máli.

en já kýs með maríu að hafa bloggið smá leyni - svona svo maður geti skrifað um hvað sem er, jú knó girl stuff o sonna.

góða skemmtun í næstu viku - bið um sjálfboðaliða til að senda mér heimasímanúmerið hennar Jóhönnu og upplýsinar um hvenær ég get hringt.

love you all :-)

mánudagur, mars 14, 2005

perluklúbbur

sææælaaaarr, hvað ég er tilbúin í perluhitting!
Ég hitti leiðbeinendurna mína fyrir greinagerðina í norrænu málflutningskeppninni í síðasta skipti fyrir skil miðvikudaginn 23. mars þannig að ég kemst bara um kvöldið.
Hins vegar þykir mér freyðivín, jarðaber og singstar allt ofsalega heillandi element fyrir það kvöld.... vil ekki að við förum að tapa okkur í hollustunni - auk þess sem ég veit um tvær stúlkur sem taka ákveðinn dúett í singstar betur en orginallinn gerir.... eða hvað diljá???

föstudagur, mars 11, 2005

Russibaninn minn...

...heitir KaosPilots. Hann er búinn að vera í full action síðast liðnu daga, upp og niður. Stundum verð ég svo óskaplega hærdd eitthvað hérna. Svo hrædd við að standa mig ekki, svo hrædd við að vera ekki að læra nóg því ég skil ekki, vera ekki nógu frumleg, gera ekki það sem ég geri VEL. Stundum finnst mér bara eins og þetta sé raunveruleika þáttur. Svona eins og það sé verið að taka okkur upp. Var einmitt að tala um þetta við vinkonu mína núna áðan.
En það er ekki svona keppni, né dómharka eins og í raunveruleikaþáttum. Ekkert baktal. En samt einhvern veginn þessi stemmning. Lögð fyrir okkur verkefni og orkan verður svo mögnuð.

Ég er að vinna að stóru verkefni þessa dagana. Fyrsta skipti sem ég vinn ein síðan eg byrjaði hérna í þessum skóla. Er búin að eyða rosa tíma í undirbúningsvinnu og var svo loksins að byrja af alvöru í morgun. Loksins þegar ég fann töffarann í mér rúllaði þetta í gang. Og vá hvað er gaman að gera e-ð sem er svona raunverulegt! Gaman að finna að ég er ung, sterk og sjálfstæð kona.

Fyrirtækið "ParaTi" sem er event management fyrirtæki verður að veruleika! ...með öllum sínum afkvæmum í framtíðinni:)

miðvikudagur, mars 09, 2005

leyni?

ég tók meðvitaða ákvörðun um að linka ekki hingað af blogginu mínu.
þá er þetta svona pínku leyni.... mér finnst það töff.

ég er í tómu rugli í skólanum og er auk þess að fara að taka þátt í málflutningskeppni sem verður haldin í danmörku í sumar - en ég þarf að undirbúa málið og skila af mér í lok mars.
samt er ég í fokki í skólanum, beila á vinum mínum og fer ekki í ræktina.
ég bara skilur ekki sjálfur mig.
þetta er kannski svona dulin þrá í að fá aftur magabólgur.
ég er samt ferlega hress og glöð með lífið - vitandi að þetta reddast allt á endanum og að það versta sem gæti gerst er að allt klikki.
so be it. ég dey ekki og get alltaf fengið hærri yfirdrátt. stóla líka á að vinir mínir gefist ekki uppá mér - ekki strax allavegana.

ánægð með sigrúnu grikklandsgyðju að vera að meika það í úglöndum og vera komin með skandinavískar vinkonur á kantinn!!

hlakka til um helgina:
- kata, eigum við að taka okkur saman og stofna leitarflokk hinna makalausu perlna?
- magga, taktu með þér ingvar. skildu hinn samt eftir heima.... :)
- diljá, halla og katrín - vildi að þið væruð líka með!!
- djonní - verður þetta ekki massapartý??

þriðjudagur, mars 08, 2005

Now its Solid---Solid as Rock!

Til hamingju með V-daginn elsku kjéllingarnar mínar, til hamingju með internationella kvinnodagen! (sjáið þið hvað ég er orðin internasjónal?)

Diljá mælir með:
- því að þið byrjið daginn á að setja RESPECT með Arethu Franklin á og dilla rassinum á meðan þið syngið hástöfum með.
-að þið kaupið ykkur fótalósjón og byrjið hvern dag á sturtu og eyðið svo nokkrum mínutum í nudda fæturnar ykkar. Veit að þetta hljómar eins og beint úr Vikunni. En trúið mér: Þetta er að bjarga lífi mínu! mmmmm
-að við tökum okkur saman og finnum leið til að láta banna lögin: "I will survive" og "Raining men". Einnig að banna ananas á pizzur.
-því að fólk sem fer í fermingaveislur fái sér EKKI brauðtertu og marengstertu í sömuferð. Það er einfaldlega viðbjóður að taka mayones og rjóma og súkkulaði í sama bita. Sjálf þvæ ég diskinn minn upp á milli, eða fæ mér nýjan.
-því að konur víða um heim fái betri lífskjör. Það er fokkings 2005!
-því að stöðva fyrirhugaðar aðgerðir á Laugarveginum!!!! Ég sver það, ég fer í nakin mótmæli ef þess þarf!
-því að þið fáið ykkur iPod. "Eftir að ég fékk mér iPod er líf mitt eins og eitt stórt Músíkkvidjó!" elskann
-smoothie í morgun, hádegis og kvöldmat! Tips: Frozin ber virka eins og klakar.
-því að búa útí útlöndum og meta ísland. Mikið hlakka ég til að koma heim í næstu viku!
-því að við reynum að halda þessari vefsíðu smá gangandi og sýna smá metnað.

Elska ykkur! Giovanni er að plana perluklúbb í nýju íbúðinni. Ég var að spá samt í hvort við ættum að bregða e-ð út af vananum (þeas borða og tala) Td. spila, allir með skemmtiatriði, út að hjóla, skíði.... Æ bara eitthvað. Ég er með fullt af hugmyndum!

Bara e-ð lítið, því það eru litlu hlutirnir í lífinu sem skipta máli:)

mánudagur, mars 07, 2005

Dúddamía...

hvað það er gaman að vera komin með svona heimaleikvang!

jammjamm

já þið segið allt það?. finnst þetta brill hugmynd ;)

sunnudagur, mars 06, 2005

bra idé !!

það er sko það eina sem ég get sagt:
GÓÐ HUGMYND !!!

Mér líst vel á þetta - þetta verður svona í staðinn fyrir perlumailin, shit hvað það verða margar færslur þegar við þurfum að ákveða eitthvað.

hlakka til að heyra í ykkur

In the name of the Pearl

Jæja þá er komið að því!
Perlurnar eru komnar með blogg. Hér getum við tjáð okkur hver með sínu nefi og update-að hvor aðra hvað er að gerast og jafnvel sett inn myndir og hugmyndir um næsta perlumeeting.
Vona að við verðum duglega að blogga hérna saman....In the name of the Pearl!

Smá perluprufa