Perlurnar

Við erum ekki saumaklúbbur, við erum pe-herluklúbbur!

þriðjudagur, mars 08, 2005

Now its Solid---Solid as Rock!

Til hamingju með V-daginn elsku kjéllingarnar mínar, til hamingju með internationella kvinnodagen! (sjáið þið hvað ég er orðin internasjónal?)

Diljá mælir með:
- því að þið byrjið daginn á að setja RESPECT með Arethu Franklin á og dilla rassinum á meðan þið syngið hástöfum með.
-að þið kaupið ykkur fótalósjón og byrjið hvern dag á sturtu og eyðið svo nokkrum mínutum í nudda fæturnar ykkar. Veit að þetta hljómar eins og beint úr Vikunni. En trúið mér: Þetta er að bjarga lífi mínu! mmmmm
-að við tökum okkur saman og finnum leið til að láta banna lögin: "I will survive" og "Raining men". Einnig að banna ananas á pizzur.
-því að fólk sem fer í fermingaveislur fái sér EKKI brauðtertu og marengstertu í sömuferð. Það er einfaldlega viðbjóður að taka mayones og rjóma og súkkulaði í sama bita. Sjálf þvæ ég diskinn minn upp á milli, eða fæ mér nýjan.
-því að konur víða um heim fái betri lífskjör. Það er fokkings 2005!
-því að stöðva fyrirhugaðar aðgerðir á Laugarveginum!!!! Ég sver það, ég fer í nakin mótmæli ef þess þarf!
-því að þið fáið ykkur iPod. "Eftir að ég fékk mér iPod er líf mitt eins og eitt stórt Músíkkvidjó!" elskann
-smoothie í morgun, hádegis og kvöldmat! Tips: Frozin ber virka eins og klakar.
-því að búa útí útlöndum og meta ísland. Mikið hlakka ég til að koma heim í næstu viku!
-því að við reynum að halda þessari vefsíðu smá gangandi og sýna smá metnað.

Elska ykkur! Giovanni er að plana perluklúbb í nýju íbúðinni. Ég var að spá samt í hvort við ættum að bregða e-ð út af vananum (þeas borða og tala) Td. spila, allir með skemmtiatriði, út að hjóla, skíði.... Æ bara eitthvað. Ég er með fullt af hugmyndum!

Bara e-ð lítið, því það eru litlu hlutirnir í lífinu sem skipta máli:)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home