Perlurnar

Við erum ekki saumaklúbbur, við erum pe-herluklúbbur!

fimmtudagur, ágúst 18, 2005

ó boj

heimilið mitt er aftur á leiðinni ofan í kassa, búin að pakka í 10 kassa dót sem á að vera í geymslu hér í Svíþjóðinni og er að vinna í þessu með að pakka því sem skal með til Íslands - það er samt skiljanlega mjög erfitt að ákveða í hvaða fötum maður ætlar að vera næstu 2 vikur og reyna svo að pakka restinni, shit fæ valkvíða dauðans.
Datt samt eitt sniðugt í hug - pakka bara næstum öllu og sendi í skip þannig að mig vanti síðan föt !!! og þá neyðist ég til að fara og kaupa fleiri !! geðveikt sniðugt :-)
Annars er bara ein vika í að ég komi heim og geti hitt allavega einhverjar af ykkur júhú :-) - Kötu og Diljá hitti ég samt ekki fyrr en næst þegar við erum í sama landi á sama tíma :-( en það hlýtur að gerast fljótlega.

Hvernig stendur annars á því að engin bloggar hérna? er kannski fólk farið að þreytast á þessum blogheimi, get nú alveg ímyndað mér það en vill samt minna á að þegar maður býr í útlöndum hefur maður lagalega skyldu að blogga - spyrjið bara Maríu ;-)

miðvikudagur, ágúst 03, 2005

so close ...

ég var svo nálægt því að gera kærastann minn brjálaðan út í mig - tengdó bjargaði mér !!! Málið var að ég var bara búin að steingleyma að á morgun erum við búin að vera saman í 5 ár, tengdó minnti mig á þetta í gærkvöldi.
Mér fannst skrýtið en samt skemmtilegt að Johan vildi fara út að borða, hélt að það væri bara svona útaf því að við erum aldrei í fríi samtímis en núna erum við í fríi saman í eina viku. Og þessi hugmynd hans að reyna að fara til Köben í þessari viku - ég setti hana aldrei í samband við þetta blessaða "afmæli" okkar .....
en hey, tengdó reddaði mér - takk Kajsa !

Þurfti samt að fara hérna í tölvudagatalið og bakka aftur til ársins 2000 til að athuga hvort það er 4 eða 5 sem er merkisdagurinn, mundi bara föstudagskvöld um verslunarmannahelgi en gat ekki munað hvort það var 4 eða 5 !!!

shit hvað ég er klikkuð ...